Um okkur
Firma Consulting er ráðgjafafyrirtæki, sem sérhæfir sig í ráðgjöf við eigendur og stjórnendur fyrirtækja. Firma Consulting veitir ráðgjöf á mörgum sviðum, sem skilgreind eru nánar á vef fyrirtækisins undir þjónusta.
Firma Consulting leggur áherslu á fagmennsku og vandaða vinnslu verkefna og frágang þeirra.
Firma Consulting hefur á að skipa einum aðalráðgjafa auk nokkurra sérfræðinga eftir eðli verkefna. Aðalráðgjafi Firma Consulting er Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur, löggiltur fyrirtækja- fasteigna- og skipasali. Magnús er með áratuga starfsreynslu sem ráðgjafi og athafnamaður í eigin rekstri. Starfandi ráðgjafi sem eigandi og stjórnandi bókhalds-, endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækis í meir en áratug. Síðar og lengst af með tvíþættan rekstur. Annars vegar eigandi, stjórnandi og starfandi stjórnarformaður eins stærsta útgáfufyrirtækis landsins, sem var sameining átta lítilla útgáfufyrirtækja. Útgáfufyrirtækið var langstærst í tímaritaútgáfu, með stærri útgefendum bóka, að auki með sýningadeild og hugbúnaðar- og upplýsingafyrirtæki. Hins vegar sem stjórnandi og starfandi stjórnarformaður í fasteigna- og landvinnslufyrirtæki (“land-development”). Stærsta verkefni þess fyrirtækis var kaup, skipulag, lagning gatna og forteikning húsa í Smárahvammslandi, var fyrsta stóra verkefni á höndum einkaaðila á Íslandi í “land-development”. Síðustu ár hefur Magnús verið aðalráðgjafi og starfandi stjórnarformaður hjá Firma Consulting. Símar Magnúsar eru 820-8800 og 896-6665. Veffang Magnúsar er magnus@firmaconsulting.is.
Firma Consulting er með virta samstarfsaðila í Danmörku fyrir Norðurlönd og norðurhluta Bandaríkjanna frá fyrirtæki með höfuðstöðvar í Boston.